Nú stendur yfir endurhönnun á guðfræðivefnum. Okkur langar að leita til notenda vefsins með mikilvæga spurningu: Hvað viljið þið sjá á þessum vef?
Aðalfundur Félags guðfræðinga var haldinn þriðjudaginn 29. maí 2007. Félag guðfræðinga var stofnað 16. september árið 2003. Allir guðfræðingar eiga rétt á aðild að félaginu. Eitt af markmiðum félagsins er að efla guðfræði sem sjálfstæða fræðigrein í íslensku samfélagi og auka áhrif hennar í þjóðfélagsumræðunn ásamt því að standa vörð um hagsmuni og réttindi guðfræðinga.
Föstudaginn 1. júní n.k. kl. 12:00, heldur dr. Jürgen Moltmann, prófessor emeritus við háskólann í Tübingen í Þýskalandi, opinberan fyrirlestur í hátíðarsal Aðalbyggingar HÍ. Yfirskrift fyrirlestursins er: The Crucified God. A Theology of the Cross. Við ræddum við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur um Moltmann. Viðtalið má sjá á kirkjan.is.
Í maí buðu fræðslusvið Biskupsstofu og Skálholtsskóli til málþingsins Kristni 21. aldarinnar. Þar voru flutt sex erindi um kirkju, kristni og guðfræði á 21. öld. Erindin voru tekin upp og nú er hægt að hlusta á þau í hlaðvarpinu hér á vefnum.
Á uppstigningardag, 17. maí, standa Hugvísindastofnun, Bókmenntafræðistofnun og Edda útgáfa fyrir málþingi um Pétur Gunnarsson og verk hans. Meðal annars verður fjallað um prestinn í einni af skáldsögum Péturs.
Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli, varði doktorsritgerð í guðfræði við Drew University í lok apríl. Hún útskrifast frá Drew háskóla í lok þessarar viku. Sigríður er þriðja konan sem lýkur doktorsprófi í guðfræði. Ritgerð hennar heitir „Abyss of God: Flesh, Love and Language in Paul Tillich.“ Á vef Grafarholtssóknar segir meðal annars um ritgerðina:
Nú hefur guðfræðivefurinn fengið nýtt heimili og við höfum tekið í notkun endurbætt vefumsjónarkerfi. Ýmsir möguleikar munu opnast og við væntum þess að vefurinn verði nú enn öflugri en fyrr. Fylgist því endilega með.
Á dögunum kom út bókin Ríki og kirkja. Uppruni og þróun þjóðkirkjuhugtaksins. Höfundur hennar er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og stundakennari við guðfræðideild Háskóla Íslands.
Sigurvin Jónsson cand. theol. sem brautskráðist frá guðfræðideild í október hlaut verkefnastyrk Félagsstofnunar Stúdenta fyrir kjörsviðsritgerð til embættisprófs í guðfræði á sviði nýjatestamentisfræða.
Á vef Princeton háskóla er að finna upptökur af fyrirlestrum sem voru fluttir á ráðstefnunni Faith and the challenges of secularism sem haldin var árið 2003. M.a. er þarna hægt að horfa á erindið Science and Secularism (Windows Media straumur) sem trúarheimspekingurinn Alvin Plantinga flutti.