Aðalfundur Félags guðfræðinga

Frá Aðalfundi Félags guðfræðinga 2007

Aðalfundur Félags guðfræðinga var haldinn þriðjudaginn 29. maí 2007. Félag guðfræðinga var stofnað 16. september árið 2003. Allir guðfræðingar eiga rétt á aðild að félaginu. Eitt af markmiðum félagsins er að efla guðfræði sem sjálfstæða fræðigrein í íslensku samfélagi og auka áhrif hennar í þjóðfélagsumræðunn ásamt því að standa vörð um hagsmuni og réttindi guðfræðinga.

Á aðalfundinum voru eftirfarandi einstaklingar kjörnir í stjórn félagsins: Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Sigurvin Jónsson og Sylvía Magnúsdóttir. Í stjórninni sátu fyrir Karítas Kristjánsdóttir, Guðrún Áslaug Einarsdóttir, Birgir Thomsen og Kristinn Ólason.

Ýmislegt spennandi er á prjónunum hjá félaginu á næstu misserum, stefnt er að því að halda hádegisfundaröð þar sem tekið verður á málefnum líðandi stundar út frá sjónarhóli guðfræðinnar. Einnig ætlar félagið að standa fyrir seminari í Sólheimum fyrir félagsfólk sitt.