1. Fremst í ritdóminum skal tilgreina: Höfund bókar eða ritstjóra, útgefanda, útgáfustað, útgáfuár, lengd bókar, verð og isbn númer.
2. Ritdómurinn má hefjast á stuttu ágripi af bókinni þar sem henni er lýst með almennum orðum.
3. Annað sem má taka fyrir í ritdómi getur verið:
- Hverjir eru helstu styrkleikar og veikleikar ritsins?
- Hvað einkennir stíl og framsetningu höfundar?
- Tekst höfundi ætlunarverk sitt?
- Eru einhverjar villur í bókinni?
- Hverjum er bókin ætluð, hver hefur gagn af henni?
- Mælir þú með bókinni?
4. Vísanir í bókina sjálfa skulu tilgreindar innan sviga, vísanir í önnur rit í aftanmálsgreinum.
5. Númerið málsgreinar.
6. Ritdómar skulu vera 700-1400 orð.
7. Aftast í hverjum ritdómi kemur fram nafn og netfang höfundar.
8. Sendið ritdóma sem viðhengi á arni.svanur.danielsson (hjá) kirkjan.is. Ritdómi skal skilað innan þriggja mánaða frá því þið fenguð bókina í hendur.
(Byggt á leiðbeiningum fyrir Journal of Religion and Popular Culture)