Jürgen Moltmann flytur fyrirlestur í Háskóla Íslands

Jürgen Moltmann

Föstudaginn 1. júní n.k. kl. 12:00, heldur dr. Jürgen Moltmann, prófessor emeritus við háskólann í Tübingen í Þýskalandi, opinberan fyrirlestur í hátíðarsal Aðalbyggingar HÍ. Yfirskrift fyrirlestursins er: The Crucified God. A Theology of the Cross. Við ræddum við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur um Moltmann. Viðtalið má sjá á kirkjan.is.

Arnfríður segir meðal annars um Moltmann:

Dr. Jürgen Moltmann er tvímælalaust einn áhrifamesti guðfræðingur síðari hluta 20. aldarinnar og ná áhrifin af guðfræði hans langt út fyrir Vestur-Evrópu. Með bókum sínum um guðfræði vonarinnar (Theologie der Hoffnung) og guðfræði krossins (Der gekreuzigte Gott), sem fyrst komu út um 1970, lagði Moltmann grunninn að þeirri guðfræðiumræðu sem hefur verið svo áberandi um víða veröld síðustu áratugina. Einkennandi fyrir guðfræði Moltmanns er áherslan á hin pólitísku áhrif guðfræðinnar þar sem hlutverk guðfræðinnar er að vera þjóðfélgaslegt hreyfiafl í baráttunni gegn illskunni og hverskonar ranglæti. Af þessum sökum hefur guðfræði Moltmanns haft mikið að segja um mótun þeirra guðfræðistefna sem setja á oddinn baráttu gegn fátækt (t.d. frelsunarguðfræði S-Ameríku), kynþáttamisrétti (t.d. svört guðfræði í USA) og kvenfyrirlitningu (t.d. femínsk guðfræði).

Það sem hefur án efa mótað dr. Jürgen Moltmann öðru fremur sem guðfræðing er reynsla hans af síðari heimsstyrjöldinni, fyrst í Þýskalandi og síðan í fangabúðum í Belgíu og Bretlandi, en þar dvaldi hann sem unglingur í lok stríðsins. Reynslan af vonleysinu og þjáningunni sem stríðsrektstrinum fylgdi, skilaði sér í þeim stóru temum sem eru gegnum gangandi í verkum Moltmanns, annars vegar þjáningin og hins vegar vonin. Moltmann setti þessi temu fram sem svör við þeirri kreppu sem guðfræðiumræðan á Vesturlöndum gekk í gegnum í kjölfar heimsstyrjaldanna tveggja, þ.e. annars vegar reynslan af því að finna Guð mitt í þjáningunni og hins vegar að sjá Guð sem uppsprettu vonarinnar um nýja og betri framtíð, ekki einungis handan þessa heims, heldur hér og nú. Þjáningin verður til umfjöllunar á hádegisfyrirlestri Moltmanns í HÍ á föstudaginn, þar sem hann fjallar um hinn krossfesta Guð, en vonin verður í fókus á ráðstefnu í Skálholtsskóla sem hefst á föstudagskvöldið.

Fyrirlestur dr. Jürgen Moltmanns er haldinn í boði guðfræðideildar Háskóla Íslands og verður fluttur á ensku.