Vísindi og afhelgun

Á vef Princeton háskóla er að finna upptökur af fyrirlestrum sem voru fluttir á ráðstefnunni Faith and the challenges of secularism sem haldin var árið 2003. M.a. er þarna hægt að horfa á erindið Science and Secularism (Windows Media straumur) sem trúarheimspekingurinn Alvin Plantinga flutti. Alister McGrath og Armand Nicholi brugðust við erindinu. Plantinga segir í upphafi erindisins:

Science is often thought to endorse or promote or enforce or require (or something like that) secularism. But what is secularism?

Þetta er hið áhugaverðasta erindi og Plantinga er einn fremsti heimspekingurinn á sviði trúarheimspeki í Bandaríkjunum í dag. Það er því vel þess virði að horfa á erindið.