Bandarískur fjölmiðlafræðingur fjallar um eftirköst atburðanna 11. september

Bandarískur fjölmiðlafræðingur fjallar um eftirköst atburðanna 11. september 2001. Eric W. Rothenbuhler, prófessor við fjölmiðla- og boðskiptadeild Texas A&M University, heldur opinberan fyrirlestur í boði félagsvísindadeildar Háskóla Íslands í stofu 101 í Odda mánudaginn 2. júní næstkomandi kl. 12:00.

Heiti fyrirlestursins er:

Merki um veraldleg trúarbrögð: Táknræn óreiða og úrbætur í kjölfar 11. september ("Signs of Secular Faith: Symbolic Disorder and Repair after Witnessing 9/11").

Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Fyrirlesturinn er byggður á ljósmyndum, sem teknar voru í New York 11. september 2001 og á næstu vikum og mánuðum. Með hjálp þessara ljósmynda leitast Eric Rothenbuhler við að greina hrun ríkjandi táknheims og sköpun annars táknheims í hans stað. Myndirnar tók Jane Martin.

Eric Rothenbuhler er í fremstu röð bandarískra fjölmiðlafræðinga. Hann hefur kennt við virta háskóla, skrifað fræðibækur, einn og með öðrum, og fjölda tímaritsgreina um fjölmiðlakenningar og félagsfræði og mannfræði fjölmiðla og boðskipta. Meðal sérsviða hans er fjölmiðlaiðnaðurinn og dægurmenning. Hann er staddur hér á landi í tilefni af norrænu málþingi um fjölmiðla og trúarbrögð, sem haldið er í samstarfi kennara við félagsvísindadeild og guðfræðideild Háskóla Íslands.

Fyrirlesturinn verður haldinn eins og áður segir í stofu 101 í Odda mánudaginn 2. júní og hefst hann kl. 12:00. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.